you know, a farmer is a farmpillar

Þór Magnússon bústólpi, Daníel Ólafsson óðalsbóndi

13.04.2006 22:08:44 / bustolpi

....

Hér eftir mun ekki koma stafkrókur á þessa síðu þar sem hún er barn síns tíma en bloggarinn Þóra Geirlaug hefur róið á ný mið: þessi HÉR

» 1 hafa sagt sína skoðun

08.04.2006 22:46:22 / bustolpi

hristi mig og skek

Jeij! Er heima með hausverk og leiðindi, eins og reyndar alltof oft upp á síðkastið. Var þrábeðin um að fara suður á Söngkeppni framhaldsskólanna, en er heima að bústólpast. EEEEEEN hvað haldiði, Helga Ingibjörg Guðjónsdóttir kom, sá og burstaði þetta. Missti mig aðeins og stökk uppúr sófanum þegar úrslitin voru tilkynnt! Jíha.... eins og ég segji... hristi mig og skek... alveg þangað til ég fæ aðra hausverkjarpílu í hausinn......

» 1 hafa sagt sína skoðun

04.04.2006 10:34:31 / bustolpi

stutt og laggott, eða var það létt....

jamm, er stödd í félagsfræði, nenni því ekki. Skólinn er reyndar stuttur og því þolanlegri í dag. Kennsla fellur niður eftir hádegi og því er da plan að halda með ástmanni mínum til höfuðborgarinnar á eftir. sem er gott. Annars ríkir hernaðarástand heima núna. Þannig er mál með vexti að Skallagrímur og Keflavík eru að leika sér í boltaleik nú nærri því á hverjum degi. Það væri svosem ekkert mál nema fyrir þær sakir að karl faðir minn heldur með Keflavík og móðir mín með Skallagrími. Haldiði að það sé, ég þori varla heim um næstu helgi vegna þess að ég er hrædd um að vera látin velja með hvor foreldrinu ég vilji standa.... arrrrrrrrg! ÞEtta er bölvað..... en jámm, þarf að fara að læra eitthvað....

» 3 hafa sagt sína skoðun

28.03.2006 11:50:53 / bustolpi

congratulations....

jújú, Silvía Nótt búin að frumflytja enska texta og myndband  við Til hamingju Ísland, ljómandi myndband, temmilega mikið af hálfnöktum karlmönnum og svona. Hinsvegar var ég mjög spennt fyrir að sjá útgáfu þeirra spaugstofumanna en missti af því á laugardaginn þar sem að ég var upptekin og svaf það af mer á sunnudaginn, í gærkvöldi átti því að taka á því og var ég búin að einsetja mér að skipta ekki um rás eftir LOST því þá er jú spaugstofan jú endurtekin, en nei! Þóra Geirlaug steinsofnaði og mundi ekki eftir sér þangað til í morgun. Þannig að nú er það eina sem ég man eftir varðandi spaugstofuna er atriði sem að Máni uppdiktaði á síðunni sinni. Eitthvað með tómata, sjúkrabíl og Siv Friðleifsdóttur. Voðalega ruglingslegt eitthvað. En engu að síður, ég er svekkt :(

Annars var ég upptekin á laugardag, fór sem sérlegur stuðningsmaður Elísabethar í Fegurðarsamkeppninni. Voðalega gaman alltasaman, hinsvegar fannst mér sjówið (eins og eyrún sagði) ekkert voða spes, en fullt af fínum súlkum sem áttu allar skilið að vinna (já, mín voða líbó í dag).

Ætli ég láti þetta ekki duga í bili, lúin og þreytt og er farin að læra :)


» 1 hafa sagt sína skoðun

24.03.2006 08:23:33 / bustolpi

horhorhor og haaaaaaaaaaaauuuuuuuuuuuuuusverkur

alltaf gaman þegar að þetta tvennt fer saman, hor og hausverkur. Ég sumsé byrjaði vikuna á því að fara í stærðfræði, með nefrennsli og líkamshita langt fyrir ofan meðallag. Þegar að ég var búin að hanga þar á stól í klukkutíma með vökvaflæði úr nösunum sem lætur Gullfoss blikna í samaburði, kuldaskjálfta en um leið svitna eins og súmóglímukappi, þá tók ég þá drastísku ákvörðun að fara heim, veik. Eins og það er nú skemmtilegt þá eyddi ég næstu þremur dögum uppi í rúmi, alein í íbúðinni. Til þess að vera ekki ein reyndi ég hvað ég gat til þess að benda Sigurði nokkrum á hversu veiklulegur hann væri þegar hann kom í hádegismat og eftir vinnu. Það var náttúrulega ekkert vit fyrir hann að vera að vaða í skólann og skilja konuna eftir eina heim þegar von er á allskyns óværum, dúkasókningarmönnum o.fl. En ég lifði, var reyndar tæpt á þriðjudagskvöldið, dópaði mig upp þannig að ég myndi kannski ná að standa í lappirnar út sýninguna, tæpt var það, var alveg búin þegar ég kom heim. Og næsti dagur fór í bælið líka, með líkamshita sem hefði verið temmilegur í heitum potti, en það var bara stuð. Fór svo loksins í skólann í gærmorgun, og viti menn, þá er allt orðið vitlaust. Farið að miða stundatöfluna við strætóferðir Strætó bs, byrja ekki fyrr en hálf níu og læti. alveg makalaust að vaða út ísvona vitleysu, en hvað get ég sagt, ekki var ég á staðnum og þess vegna ekki til þess að hafa stjórn á þessari vitleysu í blessuðu fólkinu, oseisei. Annars ætla ég að láta þetta gott heita í bili, við hittumst heil *klikk*


» 4 hafa sagt sína skoðun

09.03.2006 10:49:51 / bustolpi

Jamm og jæja

jebb, mikið búið að ske síðan síðast. Vegas var frumsýnt á laugardaginn og í kjölfarið var frumsýningapartý þar sem mér varð loks ljóst að ég er orðin gömul. var sumsé komin upp í rúm klukkan hálfþrjú. Reyndar frétti ég af því daginn eftir að allt hefði farið úr böndunum eftir að ég lét mig hverfa, svona er þetta þegar ég fer af svæðinu þá verður allt vitlaust, menn missa þvag og ég veit ekki hvað og hvað.  Annars var ég að uppgötva (eða uppgvötva ef það er orðin viðurkennd málvenja) það að Þórhildur, samkommi minn, klukkaði mig um daginn so here it is....

4 sjónvarpsþættir sem ég elska að glápa á:

Lost (ég veit, ekkert mjög frumlegt)

Nágrannar (sem er mjög erfitt þegar maður getur bara horft á stöð 2 heima hjá sér um helgar)

Stelpurnar

Spaugstofan (pabbi og mamma muna kannski eftir letihaugnum í sófanum að glápa á gamla Spaugstofu þætti, aftur og aftur)

 

4 kvikmyndir sem ég horfi á aftur og aftur og aftur og aftur:

 Bridget Jones 1

Bridget Jones 2

Sendingin frá Sjanghæ (ransæ kvikmynd í dogma stíl, gefur skemmtilega innsýn inní þegar tveir ólíkir menningarheimar mætast, ætti að vera skyldueign á hverju heimili)

Rockstar

4 bækur sem ég les aftur og aftur:

Nú á dögum er það

Stæ 603

Stæ 503

Stæ 523

Sál 103- Vöxtur og þroski

 

4 plötur sem ég get hlustað á endalaust:

Sögur úr sveitinni (ofsalega góður diskur, skemmtilega hannað umslag og góð lög, svo ekki sé minnst á textana)
Barnaplatan með Megasi´

Óskalögin 8 (báðir diskarnir eru stútfullir af "góðum" lögum frá þvi að ég var smákrakki, hver man ekki eftir öllum stórsmellum Stuðkompanísins, ég bara spyr)

Grace- Jeff Buckley

 

4 heimasíður sem ég skoða daglega:
nú, það mun vera bloggið mitt....

mbl.is

fva.is

plútó.fva.is

 

4 máltíðir sem ég slefa yfir:
Stroganoff sem mamma gerir (reyndar með aðstoð Toro gamla)

Mousakka ástmanns mínns (með aðstoð Knorr eða einhverss svoleiðis)

Marsípanterta sem mamma gerir með jarðarberja og súkkulaðifrómas

Ananasfrómasinn sem mamma gerir á jólunum

hangikjöt

svið

súrmatur

marsarína

já, bara fjórar.... úps

 

4 sem ég næli í:

Vil forða fleirum frá því að lenda í greipum nælingarinnar.....


» 8 hafa sagt sína skoðun

14.02.2006 10:52:47 / bustolpi

ekki gefa honum svona mikið amfetamín..... hann bara vill alltaf meira

já, þessi flegu orð féllu á leiklistaræfingu í gær. Súrar æfingar já. Annars er allt að smella saman í þessu hjá okkur öllu saman, að vitaskuld misjafnt fólk enda 40 manna hópur, en gegnumsneitt eru þetta snellingar. Hef reyndar haft óhemju mikið að gera sem hefur leitt til þess að ég man varla hvernig hann segurður minn lítur út lengur. það samt sleppur alveg, þetta rifjast alltaf upp. Frumsýning 4. mars og ef þú mætir ekki, já þá ertu bara lúðagrey. Oseisei já. Svo verður gospelmessa þann 5. mars þannig að maður fer úr því að vera slöttý í leikritinu yfir í að vera guðhrædd guðspjallakona, það ætti nú ekki að vera erfitt fyrir mig, enda afskaplega fjölhæf, jújú.

Familý hittingur var á sunnudag. Rúna systir mömmu kom með mann sinn og örverpi sem er algjör prinsessa. Guðný Ösp er sumsé algjör snillingu og er ég sko alls ekki ósátt við að þessi unga stúlka sé sona líka asskoti náskyld mér. Það kom mér reyndar á óvart hversu Bjartamar Þór (bróðursonur minn, einnig snillingur mikill)var  minnst athyglissjúkur í kringum hana. togaði m.a. í afa sinn og spurði karl; líst þér ekki á hana? Jújú, það kemur snemma fram þegar ungviðið er skylt mér :)

en nú er mál að fara að gera eitthvað af viti.....


» 3 hafa sagt sína skoðun

27.01.2006 11:10:14 / bustolpi

vælivæl

hættiði þessu væli, þessi setning datt upp úr Jóni Gunnari í íslensku tíma áðan. Eitthvað fólk að væla yfir miklu álagi, þurfum að lesa 157 bls í Sjálfstæðu fólki fyirr þriðjudaginn, eitthvað sem okkur var sagt í upphafi annar, alveg hræðilegt... jámm. Sit núna í sálfræði að læra um mismunandi "takt" í vexti líffæra. Vissuði til dæmis... já nei, glæran er farin. Hef eytt síðustu dögum annað hvort ofan í klósettinu eða uppi í rúmi. Fannst þetta einstök lífsreynsla þar sem ég hef ekki fengið ælupest síðan að ég var alveg heima á Norðurreykjum. Var hinsvegar svo asskoti séð að ná mér í kall þannig að ég hef haft það nokkuð gott, miðað við það að vera alltaf flökurt og så vidare...

En já,  á laugardaginn er stefnan tekin á þorrablót í Stafholtstungunum. Hlakka doldið mikið til og reyndar líka til 11.mars þegar Góugleðin verður. Reyndar toppar ekkert Góugleðina í fyrra þegar undirbúningurinn reyndi svo mikið á magavöðvana... Jebb, Sendingin frá Sjanghæ var einmitt mitt fyrsta kvikmyndahlutverk, eyddi heilum sunnudegi með föður mínum og restinni af nefndinni og hinum ofursvala Gísla Einars að taka upp þessa stórmynd. Var vægast sagt búin þegar ég kom út á skaga eftir tökur. Mjámm...

Síðast, en ekki síst:

Eysteinn, sem ég veit ekki hver er: við töpuðum með einu stigi fyrir FAS í gb, eftir að hafa verið yfir allan tíman. FAS tapaði svo fyrir Flensborg í næstu umferð.

Þóra Björg: Hef tekið þá ákvörðun að fá mér ekki golf þar sem að ég frétti af því hvernig ykkur hefði gengið uppeftir ;)

Barbapabbi: hæ, er gaman að vera til rúsínubollan mín... (langaði bara til að vera gelgja) ....

og bles


» 8 hafa sagt sína skoðun

17.01.2006 21:06:35 / bustolpi

ég veit, looong time

ástæðan fyrir bloggleysi er netleysi, leti og sú staðreynd að frá því fyrir áramót var ég doldið eiginlega ekkert á landinu, kom reyndar heim þann 5. janúar, búin með  minn sólarstrandakvóta í bili.. Er sem stendur í pásu á leiklistaræfingu og ákvað að hendast inná bloggið og rita smá. Algjörir snillingnar hérna í kring núna, eeeeeen ég má ekkert segja. :)

Veðrið er búið að vera ansi skítslegt, en einhvernvegin hefur mér fundist það bara pínu notalegt, alveg þangað til ég þurfti að koma mér á milli staða, festi mig, ekki einu sinni heldur tvisvar á sunnudaginn þegar ég var á leiðinni út á skaga. Karl faðir minn, hörkutól og kraftakall, dró mig upp ásamt móður minni, kjarnakvendi af bestu gerð og svo hinum mikla, the great Blái traktor..... já svo var minn heittelskaði þarna ásamt systur sinni, sýndum þarna glæsilega ökuleikni... en já, ég rita meira við tækifæri.... og blessss


» 3 hafa sagt sína skoðun

12.12.2005 00:38:58 / bustolpi

alpha- laktalbúmín

jább, eins og glöggir taka eftir er fyrirsögnin einmitt hluti af próteinum úr mjólk.... sem er alveg ossalega gaman. Til að útskýra málið þá var ég einmitt að klára að gata ritgerðina mína, Íslenska mjólkurkýrin-saga og áhrif fóðrunar á mjólkina. Stórskemmtilegt rit um mjólkurprótín og fleira sem er tímalaus skemmtun. 33 síður þrungnar af spennu..., ást ... hatri. Neinei, aðeins að missa mig hérna.... Eitt próf búið og þrjú eftir. Massaði stærðfræðina á þriðjudaginn síðasta, vona a.mk. að ég hafi náð þessu með glans, ef ekki, tjah ætli rangeygðum skólastjóra verði þá ekki að ósk sinni... eða ekki 8) það fær nú ekki að ske. Svo á morgun er landafræði sem verður nú vonandi ekkert mál að massa. Reyndar hef ég ekki náð nokkru einasta sambandi við þennan kennara þannig að maður veit nokkurn vegin ekkert hvernig maður stendur... oseisei. svo stærðfræði, og júh, stærðfræði! klára svo prófin eftir hádegi á miðvikudag og á fimmtudag mun ég halda áfram mínum glæsilega starfsferli í Baulunni.

Hóf sumsé ferilinn sem aggreisludama á miðvikudaginn, smávægileg klúður hér og þar, 14% skattur 24,5% skattur munur þar á, kann að gera lottó, pylsur, þekkja muninn á winston læt, bláum, í hörðum mjúkum, bláum camel, bláum capri. Jú neim itt. Fékk reyndar smávægilegan hausverk þegar ég fékk það skemmtilega verkefni að endurraða í sígarettuskúffuna, komst að því að eituráhrifin hafa áhrif á mig þó ég reyki ekki einu sinni. oseisei

Pabbi er greinilega það heitasta í brandanum í dag. Hann er farinn að vera í fjölmiðlum nánast í hverri viku. Bíð bara eftir fyrisögn í DV : Bjartmar nærbuxnalaus í viðtali hjá Gísla E. Eða ekki, nei hann pabbi minn ber sko virðingu fyrir sjálfum sér. Lítill fugl (eða reyndar bara pabbi, sem hefur hvorki fiður, né getur flogið) sagði mér að á þriðjudaginn næsta kl 09:05 og aftur kl 19:eitthvað verði hann gestur Laufskálans. Já, pabbi er að meikaða, papparazzarnir hafa reyndar ekki látið sjá sig, en það er svo sem skiljanlegt, kalt úti og umhleypingasamt um þessar mundir, en þegar vorar, já þá skulum við bara sjá til. Ég reyndar uppgötvaði áðan (þegar ég var að lesa um hitabeltisfellibylji) að þessi tónlist hans föður míns er þannig að hún festist á heilanum á manni, er hérna búin að vera að raula í höfðinu á mér raunasögu Gunnars Gauta í geldingarferð að Fróðastöðum aftur og aftur og aftur... og einu sinni enn. Man alltaf þegar ég hugsaði föður mínum þegjandi þörfina þegar ég var að basla í sálfræðiprófi og það eina sem ég gat hugsað var "lífið var grautur og gúmmískór..." Ekki það besta þegar hugurinn á að vera að kryfja rannsóknir Emils Durkheim.... Neinei, pabbi minn er fínn, nei annars, pabbi minn er bestur. :D jess, ætli ég segji þetta ekki gott í bili, rétt að fara að sofa í hausinn á sér,

við hittumst heil klikk (svona eins og Bóla tröllastelpa segir)


» 5 hafa sagt sína skoðun

23.11.2005 22:46:42 / bustolpi

hettusótt- hitasótt

Jæja, ég er á lífi. Síðustu dagar hafa hinsvegar einkennst af pirring, öfvöxnum háls og lítilli næringu. Jebb, hettusóttin er komin og hefur valdið því að munnurinn hefur bara getað opnast takmarkað sem þýðir að á matmálstímum hef ég þurft að taka því rólega og borða hægt, sem verður aftur til þess að þegar að ég er búin að borða er ég aftur orðin svöng (Reyndar gerist þetta alltaf þegar ég borða....) Jább, þannig að ef að þið hafið séð manneskju með úfið hár, í náttbuxum, lopapeysu og flókaskóm föður síns, þá hefur það verið ég :)
Ég var semsé sótt af mínum ástkæru foreldrum í gær og flutt frá Sigurði mínum upp í Borgarfjörð á Norðurreyki Spa (heilsuhælið Norðurreykjum) til að ná bata. Sem er að virka svona grefilli vel. A.m.k. hefur hálsinn á mér minnkað frá því að vera muuun stærri en venjulegt gæti talist í það að líta út eins og á sæmilega roskinni kellingu. Hvort að það er nú samt betra eða verra er spurning.
Heyrði nú samt í dag að líffæri úr svínum hefðu verið aðalmálið í líffræðitímum í dag. Var alveg asskoti ósátt með að missa af því, ég var á tímabili að pæla í að skjótast yfir og ná mér í eins og nokkur hjörtu og lungu, hætti svo snarlega við þegar ég mundi eftir vettvangsferðinni á svínabúið þegar ég var í 2. eða 3. bekk Kleppjárnsreykjaskóla. Í ferðasögunni fannst mér merkilegasta dýrið kötturinn á Hýrumel.  Hinsvegar fékk ég ekki að skrifa um það, heldur beygði ég mig undir yfirvaldið og sagði: við fengum að halda á grísunum. Ljómandi spennandi það. Sorglegt, en satt.
Annað, sem er hinsvegar alls ekki sorglegt er að Þóra Geirlaug er að gerast afgreiðsludama. Jább, hef verið að æfa mig fyrir framan spegilinn síðustu daga og segja góadæjinn, get jé asstoða?? og setja svo í lokinn upp hæfilega tóman svip þannig að öruggt sé að ekkert sé að gerast í heilabúinu. Seinni hlutinn hefur tekist bærilega þar sem að hettusóttin hefur gert það að verkum að ég hef ekkert verið sérstaklega gáfuleg. Svona til þess að útskýra þetta alltsaman nánar mun stórverslunin og þjónustumiðstöðin Baulan, þjónusta í þjóðbraut, njóta starskrafta minna í jólafríinu. Jább, þannig að nú er ráð að bruna í Bauluna og kaupa sér eins og einn hammara eða jafnvel bara kökusneið og kaffi.

Mun pistli þessum lokið verða sirkabát hér og bið ég ykur vel að lifa
góðar stundir


» 3 hafa sagt sína skoðun

17.11.2005 21:38:33 / bustolpi

blogg fyrir eyrúnu

jább, eiturnett blogg fyrir Eyrúnu. Oseisei, sit hér ein uppí íbúð að læra um hænsnfugla, ofsalega gaman eða þannig. Hélt vestur í Laugargerði ásamt Óla Haralds að kynna FVA, gaman að því að krakkarnir þar voru alveg mun meira venjuleg heldur en þeir unglingar sem maður er búinn að sjá upp á síðkastið. oseisei. Kom heim alveg gjörsamlega búin, hausverkur og ógleði og skemmtilegt. Sigurður gamli fór svo áðan að smíða eitthvað uppí Borgarfirði (sem er aðal pleisið). Er reyndar ekkert mjög hress, drulluleiðist þar sem að Gallus gallus domesticus er ekki mesti stuðfugl sem ég hef kynnst. oseisei. Annars er ég að pæla í að fara að tækla þennan helv.... fugl..... við heyrumst


» 0 hafa sagt sína skoðun

06.11.2005 12:47:02 / bustolpi

sveðin sveð

Jább, mætt hér, eitursvöl á svölum sunnudegi. Hress eftir hádegismatinn sem samanstóð af sviðum (útskýrir fyrirsögnina) kartöflumús og rófum :) Já þjóðlegt, ég veit, en svona er þetta nú bara. Gærdagurinn var mjög skemmtilegur, dreif mig ásamt aldraðri móður minni á félagsvist. jebb, old school.is en fyrir ykkur sem ekki vita það þá er ég brjálaður félagsvistarfíkill, og hef verið frá blautu barnsbeini. Oseisei. Annars ætla ég að láta þetta gott heita í bili en vil minná það í leiðinni að mér finnst alltof lítið um almenna kurteisi hér á síðunni, hvað varð um þann góða sið að kvitta fyrir komun, þannig að maður viti nú hvaða hræður þetta eru sem slæðast hér inn á síðuna.....

og bless


» 7 hafa sagt sína skoðun

27.10.2005 12:00:09 / bustolpi

jamm og jæja

jább, komst að því í gær að eftir að ég hætti í íþróttum undir stjórn Guðjóns nokkurs Guðmundssonar þá hefur þreki og líkamsræktaráhuga farið snarminnkandi. En, þar sem að allt stefnir í að karl faðir minn (sem er þó nettur með eindæmum) verði bæði léttari og grennri en ég þá hefur Þóra Geirlaug ( Þóra Geirlaug Ofurmassi) ákveðið að taka málin í sínar hendur. Ofurkvendið fór út að hlaupa í gær, alveg alltof hratt og alltof langt til að byrja með. Hlaupið endaði í einskonar kraftgöngu þar sem að reyndi sem mest á andlitsvöðvana, þar sem að´eigi má tapa kúlinu, oseiseinei. Að öllu gríni slepptu þá fór ég út að labba í gær alveg risahring um skagann. Tók eftir hlutum sem ég hef ekki einu sinni pælt í hingað til. Hver hefði trúað því að það væri virkilega fuglalíf niður við Sementsverksmiðjuna, alveg makalaust.  Held að ég endurtaki þetta bara í dag. Taki jafnvel með mér myndvél og taki myndir af öllum þessum rótsvölu köttum sem eru hérna á skaganum. ALveg endalaust svalir kettir sem er svo nákvæmlega sama um allt og alla.

Stefnan er annars tekin á hádegismat núna fetir hálftíma, þarf að skjótast í nettó og kaupa spaghettí, það er ekkert spaghetti bolognese, ef að það er ekkert spaghetti. Svo er stærðfræði hjá BGK og út að labba /hlaupa/kraftganga og loks á að klára þessa bleðsuðu jarðfræðiskýrslu. Meistarastykkinu alveg að verða lokið, sjáiði til. Að lokum mun vera tekin smá líffræði á þetta og svo bara að sofa, eða liggja í leti og prjóna. Oseisei, en adíjos

kveðja, Þóra Geirlaug, ofurmassi/ofurkokkur


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5